Bát hvolfdi í Hvalfirði

12. ágúst, 2024

Einn var um borð í bátnum.

12.8.2024 Kl: 20:55

Þyrlusveit
Landhelgisgæslunnar, lögregla, áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri og
sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út á
áttunda tímanum í kvöld í kjölfar þess að tilkynnt var um bát á hvolfi í
Hvalfirði. 

Vegfarendur sögðu bátinn vera um 300 metra frá landi og sáu mann á
kili bátsins. Björgunarsveitir frá Akranesi, Kjalarnesi og Reykjavík héldu á
staðinn og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var ræst út á mesta forgangi. 

Þegar þyrlusveit
og björgunarsveitarfólk kom á vettvang hafði manninum tekist að komast af sjálfsdáðum
í land. Viðbragðsaðilar hlúðu að manninum sem var bæði kaldur og blautur eftir óhappið. 

Hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til frekari skoðunar á sjúkrahús
í Reykjavík.

Baldur-maelir-i-K45-arid-2015Sjómælingaskipið Baldur

Sjofn-ReykjavikSjöfn frá Reykjavík.