Tilkynningar til sjófarenda komnar út

11. desember, 2024

Eitt af lögbundnum hlutverkum Landhelgisgæslunnar eru sjómælingar (dýptarmælingar) og sjókortagerð fyrir íslenskt hafsvæði ásamt útgáfu annarra sjóferðagagna og eru þessi verkefni í höndum sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar stofnunarinnar.

11.12.2024 Kl: 10:19

Eitt af lögbundnum hlutverkum Landhelgisgæslunnar eru
sjómælingar (dýptarmælingar) og sjókortagerð fyrir íslenskt hafsvæði ásamt
útgáfu annarra sjóferðagagna og eru þessi verkefni í höndum sjómælinga- og
siglingaöryggisdeildar stofnunarinnar.

Sjókort hafa lögformlegt gildi og skulu þau ávallt innihalda
nýjustu upplýsingar er varða siglingaöryggi. Verði breytingar á t.d. vitum,
sjómerkjum, hafnarmannvirkjum, dýpi o.s.frv. þarf að uppfæra sjókortin í
samræmi við það svo þau haldi sínu lögformlega gildi. Sé um meiriháttar
breytingar að ræða eru gefnar út nýjar útgáfur sjókorta en ef breytingar eru
minniháttar eða tímabundnar, t.d. ef sjómerki eins dufl er óvirkt eða
framkvæmdavinna í gangi innan hafna, þá eru sjófarendur upplýstir með svokölluðum
Tilkynningum til sjófarenda, og eiga skipstjórnarmenn þá að uppfæra
sjókort sín í samræmi við þær upplýsingar sem tilkynnt er um.

Landhelgisgæslan gefur Tilkynningar til sjófarenda
jafnaði út einu sinni í mánuði, en oftar ef þurfa þykir. Tilkynningarnar eru
bæði á íslensku og ensku og eru sendar á skráða viðtakendur auk þess sem þær
eru birtar á vefsíðu LHG.

Skip með viðurkennt rafrænt sjókorta- og upplýsingakerfi
(ECDIS), eru áskrifendur að reglulegri uppfærslu sjókorta og fá þessar
tilkynningar sendar til sín frá þjónustuaðilum, þ.e.a.s. ef breytingar eiga við
þau kort sem í notkun eru um borð. Í skipum sem ekki eru búin þessum
viðurkennda ECDIS búnaði þarf hins vegar að hafa sjókort á pappír og þau kort
þurfa skipstjórnarmenn að uppfæra handvirkt.

12. útgáfa þessa árs af Tilkynningum til sjófarenda kom út í lok nóvember og inniheldur hún tilkynningar nr. 70-79 á árinu 2024.

Tilkynningar til sjófarenda og nánari upplýsingar má
finna á heimasíðu LHG: Tilkynningar
til sjófarenda | Landhelgisgæsla Íslands

Þeir sem vilja gerast áskrifendur að Tilkynningum til
sjófarenda
er bent á að senda tölvupóst með viðeigandi upplýsingum til
sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar LHG á netfangið [email protected].