Þór fluttur með Freyju

16. desember, 2024

Björgunarskipið Þór öðlast nýtt líf á Vestfjörðum.

16.12.2024 Kl: 15:07

Gamli
Þór, björgunarskip Slysavarnafélags Landsbjargar, var flutt með varðskipinu
Freyju frá Vestmannaeyjum vestur á firði þar sem skipið kemur til með að öðlast
nýtt líf í þjónustu björgunarsveitarinnar Kofra á Súðavík. Þór var hífður um
borð í Freyju við Binnabryggju í Eyjum og haldið með skipið á Ísafjörð. Vel fór
um björgunarskipið við bakborðs lunningu á aðalþilfari varðskipsins.

Þegar
komið var til Ísafjarðar tók björgunarsveitarfólk á vegum Kofra við skipinu sem
híft var frá Freyju með gámalyftara og sjósett í framhaldinu. Vel gekk að koma
Þór frá borði. Nýir eigendur sigldu Þór frá Ísafirði til Súðavíkur þar sem hann
verður til taks.

Thor-flutt-med-FreyjuÞór um borð í Freyju. 

Thor-og-Freyja-3Búið að sjósetja Þór.