Útkall vegna veiks skipverja

31. maí, 2025

Skipstjóri rússnesks fiskiskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag og óskaði eftir aðstoð vegna veikinda eins í áhöfn skipsins. Skipið var þá statt á Reykjaneshrygg, fyrir utan íslenska efnahagslögsögu. Skipið var beðið um að halda nær landi en það var rúmum 200 sjómílum suðvestur af landinu þegar beiðnin um aðstoð barst. Vegna fjarlægðarinnar frá […]

Skipstjóri rússnesks fiskiskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag og óskaði eftir aðstoð vegna veikinda eins í áhöfn skipsins. Skipið var þá statt á Reykjaneshrygg, fyrir utan íslenska efnahagslögsögu. Skipið var beðið um að halda nær landi en það var rúmum 200 sjómílum suðvestur af landinu þegar beiðnin um aðstoð barst. Vegna fjarlægðarinnar frá landi var ákveðið að kalla áhöfnina á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, út auk þyrlusveitar. Hlutverk flugvélarinnar er m.a að annast samskipti við stjórnstöð og vera í viðbragðsstöðu fyrir áhöfn þyrlunnar.

Um kvöldmatarleytið var áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, komin að skipinu. Hífingar gengu vel en um borð í TF-SIF var túlkur sem auðveldaði samskipti milli þyrluáhafnarinnar og áhafnar skipsins.

TF-EIR flutti skipverjann á Landspítalann í Fossvogi en þar lenti þyrlan á níunda tímanum í kvöld.