Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum í dag vegna gróðurelda í Þjóðbrókargili, skammt frá Hólmavík. Viðbragðsaðilar áttu í erfiðleikum með að komast að eldinum og því varð að kalla þyrlu Landhelgisgæslunnar út til að annast slökkvistörf með slökkviskjólu. Skjólan var fyllt af vatni í nokkur skipti og vatninu svo sleppt yfir eldinn. Slökkvistörf […]
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum í dag vegna gróðurelda í Þjóðbrókargili, skammt frá Hólmavík.
Viðbragðsaðilar áttu í erfiðleikum með að komast að eldinum og því varð að kalla þyrlu Landhelgisgæslunnar út til að annast slökkvistörf með slökkviskjólu.
Skjólan var fyllt af vatni í nokkur skipti og vatninu svo sleppt yfir eldinn.
Slökkvistörf gengu vel og á áttunda tímanum hafði eldurinn verið slökktur og þá gat þyrlusveitin haldið aftur til Reykjavíkur.