Viðhaldi sinnt í Háey

18. júní, 2025

Áhöfnin á varðskipinu Freyju lagði á dögunum af stað í árlegan vitatúr í samstarfi við starfsmenn Vegagerðarinnar. Áratugum saman hafa varðskip Landhelgisgæslunnar siglt meðfram ströndum landsins vegna eftirlits með ljósvitum, skerjavitum, sjómerkjum og ljósduflum sem ekki er hægt að komast í frá landi. Áhöfnin á varðskipinu Freyju og starfsmenn Vegagerðarinnar sjá um eftirlit og viðhald […]

Áhöfnin á varðskipinu Freyju lagði á dögunum af stað í árlegan vitatúr í samstarfi við starfsmenn Vegagerðarinnar.

Áratugum saman hafa varðskip Landhelgisgæslunnar siglt meðfram ströndum landsins vegna eftirlits með ljósvitum, skerjavitum, sjómerkjum og ljósduflum sem ekki er hægt að komast í frá landi.

Áhöfnin á varðskipinu Freyju og starfsmenn Vegagerðarinnar sjá um eftirlit og viðhald á vitum og öðrum sjómerkjum í ferðinni.

Beita þarf ýmsum ráðum til að nálgast suma vitana og áhöfnin á Freyju og rafvirkjar Vegagerðarinnar þurftu að klifra smá spöl til að sinna viðhaldi á ljósvitanum í Háey.

Meðfylgjandi myndband gefur áhugaverða innsýn inn í þennan árlega vitatúr.