Mikið viðbragð vegna leka um borð í fiskibáti norður af Rifi

26. júní, 2025

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi og áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri voru kallaðar út í kjölfar þess að skipstjóri fiskibáts hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á tólfta tímanum og lýsti yfir neyðarástandi vegna leka um borð í bátnum. Töluverður sjór var þá kominn í vélarrúm bátsins. Einnig voru skip í grenndinni beðin um að […]

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi og áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri voru kallaðar út í kjölfar þess að skipstjóri fiskibáts hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á tólfta tímanum og lýsti yfir neyðarástandi vegna leka um borð í bátnum. Töluverður sjór var þá kominn í vélarrúm bátsins.

Einnig voru skip í grenndinni beðin um að halda á staðinn og var skipstjóri fiskibáts fyrstur á vettvang og var taug komið á milli bátanna. Skömmu síðar var sjómælingaskipið Baldur komið á staðinn auk björgunarskipsins Bjargar frá Rifi og áhafnarinnar á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar. Dælum var komið fyrir um borð og sjó dælt úr bátnum.

Fiskibáturinn tekinn í tog til hafnar á Rifi í fylgd björgunarskipsins Bjargar og áhafnar Baldurs.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar á staðnum.