Eftirlit með Síldarsmugunni

1. ágúst, 2025

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, hefur stundað öflugt eftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland undanfarnar vikur. Á miðvikudag var farið í eftirlit austur af landinu og jafnframt flogið yfir Síldarsmuguna þar sem 14 íslensk fiskiskip voru að veiðum. Alls voru rúmlega 40 skip á svæðinu þegar TF-SIF flaug þar yfir, þar af voru 3 grænlensk og […]

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, hefur stundað öflugt eftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland undanfarnar vikur.

Á miðvikudag var farið í eftirlit austur af landinu og jafnframt flogið yfir Síldarsmuguna þar sem 14 íslensk fiskiskip voru að veiðum. Alls voru rúmlega 40 skip á svæðinu þegar TF-SIF flaug þar yfir, þar af voru 3 grænlensk og 25 rússnesk, bæði fiskiskip og þjónustuskip.