

Skipstjóri íslensks togara hafði samband við Landhelgisgæsluna síðdegis á miðvikudag og óskaði eftir aðstoð í kjölfar þess að veiðarfær festust í skrúfu skipsins sem var á veiðum um 25 sjómílur vestnorðvestur af Bjargtöngum. Varðskipið Þór sem var á siglingu í Breiðafirði var kallað út og kom á vettvang um fjórum klukkustundum síðar.
Rétt fyrir miðnætti var línu skotið yfir í togarann og dráttartaug fest. Í kjölfarið var haldið áleiðis með skipið til Patreksfjarðar og ákveðið að senda kafara varðskipsins til að kanna aðstæður í birtingu.
Næsta morgun hélt aðgerðin áfram og vel gekk að losa veiðarfærin úr skrúfunni. Að því búnu staðfestu kafararnir að skrúfan væri óskemmd og enginn leki sjáanlegur.
Áhöfn togarans gat þá sleppt dráttartauginni og varðskipið hélt til annarra starfa eftir vel heppnaða aðgerð.


