Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu við sjávarsíðuna

6. mars, 2026

Landhelgisgæslan vekur á því athygli að hvasst er í hafinu suðvestur af landinu og þung alda að byggjast upp. Þegar þetta er ritað eru í gildi stormspár fyrir flest djúpmið í kringum landið og einnig á grunnmiðum frá suðausturmiðum, vestur með landinu að Vestfjarðamiðum.

Veðurspár gera þannig ráð fyrir suðvestan hvassviðri eða stormi á miðum og djúpum sunnan og vestan við landið fram á morgundaginn og ölduhæð í samræmi við það. Má því gera ráð fyrir nokkrum áhlaðanda við ströndina sunnan- og vestanlands fram á morgundaginn.

Þó nú sé minnkandi straumur getur áhlaðandi vegna álandsvinds, ölduhæðar og lækkandi loftþrýstins aukið sjávarhæð umfram útreiknaðar flóðspár og sjór því mögulega flætt upp á bryggjur og gengið á land þar sem ströndin liggur lágt. Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og að hugað verði að skipum og bátum þar sem súgur getur myndast í höfnum.

Ölduspá af Brunni Veðurstofunnar kl 0600 laugardaginn 7. mars 2026.

Fleiri Fréttir