

Heimsóknir varðskipa Landhelgisgæslunnar vegna aldarafmælisins halda áfram.
Um helgina heimsótti varðskipið Þór Flateyri og áhöfnin bauð gestum og gangandi að skoða skipið ásamt grunn- og leikskóla bæjarins. Það sama var uppi á teningnum þegar áhöfnin á varðskipinu Freyju bauð íbúum Eskifjarðar um borð í skipið í lok febrúar. Á fjórða hundrað manns skoðuðu varðskipið Freyju á Eskifirði og á annað hundrað komu um borð í Þór á Flateyri.
Á Eskifirði tók Friðrik Höskuldsson, skipherra, á móti, Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra Fjarðarbyggðar sem kynnti sér störf áhafnarinnar á Freyju og færði áhöfninni kveðjur bæjarfélagsins í tilefni tímamótanna.
Í heimsókninni á Flateyri kom björgunarsveitin einnig færandi hendi og afhenti Páli Geirdal og áhöfn Þórs blómvönd og góðgæti í tilefni afmælisins. Þá kom Steinunn Guðný Einarsdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðar, og afhenti áhöfn Þórs gjöf og kveðju frá Ísafjarðarbæ.
Landhelgisgæslan þakkar innilega fyrir blíðar móttökur á afmælisárinu.











