Æfingar þyrlusveitarinnar í Amsterdam gengu vel

18. mars, 2026

Sumar æfingar þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar krefjast þess að æft sé við sérstakar aðstæður sem ekki er að finna á Íslandi. Dæmi um það er svokölluð HUET þjálfun (Helicopter Underwater Escape Training) sem snýr að því að æfa viðbrögð við að koma sér út úr þyrlu sem nauðlendir á sjó.

Allar þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar verða að gangast undir þjálfunina með reglulegu millibili og á það jafnt við um flugmenn, sigmenn, spilmenn og lækna. Markmiðið er að allir um borð séu undir það búnir að geta komist úr þyrlu sem þarf að lenda á sjó eða vatni. Einnig er æft að koma félaga út úr þyrlunni sem gæti verið fastur eða meðvitundarlaus. Þjálfun er bæði bókleg og verkleg.

Í verklega þættinum kemur áhöfnin sér fyrir í þyrlulíkani sem er síðan slakað niður í sundlaug. Fyrst er þetta gert rólega, svo er hraðinn aukinn, því næst er líkaninu velt og í síðustu ferðinni er æfingin gerð með blindgrímum. Allt er þetta gert til að líkja eftir sem raunverulegustum aðstæðum.

Þjálfunin fór fram í Amsterdam að þessu sinni. Jóhannes Jóhannesson, flugmaður, tók meðfylgjandi myndband af félögum sínum í vatninu en eins og sjá má gekk vel að yfirgefa þyrluna.