Erlendri snekkju meinuð hafnarkoma á Akureyri

21. mars, 2026

Erlendri snekkju var meinuð hafnarkoma á Akureyri fyrr í dag á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja.

Ákvörðunin byggir á þeim hluta þvingunaraðgerðanna sem kveður á um að skip sem sigldi undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 er óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES svæðinu. 

Á fimmtudag barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar komutilkynning frá snekkjunni sem siglir undir fána Panama en snekkjan var á leið frá Istanbúl til Akureyrar með 26 manns um borð. 

Við nánari skoðun kom í ljós að skipið sigldi undir rússneskum fána frá apríl 2021 til september 2022. Í kjölfarið sendi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar erindi á skipið þar sem óskað var eftir upplýsingum og staðfestingu þess efnis að skipið hafi siglt undir rússneskum fána þar til í september 2022. 

Að lokinni gagnaöflun þótti ljóst að skipið hafi siglt undir rússneskum fána á fyrrgreindu tímabili og á þeim grundvelli tilkynnti Landhelgisgæsla Íslands skipstjóra snekkjunnar að henni væri meinuð hafnarkoma á Akureyri.

Landhelgisgæsla Íslands og utanríkisráðuneytið hafa verið í samskiptum vegna málsins sem enn er í vinnslu.