
Jarl Bjarnason, smyrjari, lauk farsælum starfsferli sínum á varðskipum Landhelgisgæslunnar þegar varðskipið Þór lagðist að bryggju í Reykjavík á föstudag. Jarl hefur starfað á varðskipum Gæslunnar frá árinu 1997.
Georg Kr. Lárusson tók á móti Jarli þegar skipið kom í land og Svanhildur Sverrisdóttir, mannauðsstjóri Landhelgisgæslunnar, færði honum blómvönd í tilefni tímamótanna.
Jarl fagnaði 67 ára afmæli í sinni síðustu ferð og áhöfnin hélt afmæliskaffi honum til heiðurs.
Landhelgisgæslan þakkar Jarli fyrir hans framlag til verkefna Landhelgisgæslunnar á liðnum árum.






