Kristbjörg trúnaðarmaður ársins

27. mars, 2026

Á aðalfundi Sameykis í vikunni var Kristbjörg H. Guðmundsdóttir, varðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, heiðruð fyrir framúrskarandi starf í þágu félagsmanna og réttindabaráttu þeirra.

Kristbjörg var önnur tveggja trúnaðarmanna sem hlutu viðurkenninguna en auk hennar var Ottó Hörður Guðmundsson verðlaunaður. Á vef Sameykis segir að þau hafi sýnt einstakan dugnað og elju í störfum sínum fyrir Sameyki.

Í tilkynningu frá Sameyki segir: ,,Kristbjörg H. Guðmundsdóttir hefur gegnt hlutverki trúnaðarmanns í tvö kjörtímabil og látið til sín taka með markvissum hætti. Hún átti frumkvæði að stofnun vaktavinnuhóps sem hittist reglulega og vinnur að umbótum á vaktakerfum með það að markmiði að bæta starfsskilyrði vaktavinnufólks, meðal annars með tilliti til komandi kjarasamninga. Kristbjörg hefur einnig verið mjög virk í störfum trúnaðarmanns á sínum vinnustað og lagt sitt af mörkum til að bæta aðstæður samstarfsfólks.“

Landhelgisgæsla Íslands óskar Kristbjörgu innilega til hamingju með viðurkenninguna.