
Í gær, fimmtudaginn 26.mars voru Tilkynningar til sjófarenda sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslands, sjá hér.
Þessar nýjustu tilkynningar snúa að breytingum á ljósduflum í Skerjafirði.
Þá er tímabundin (T) tilkynning um leiðarmerki sem er fallið en stendur til að laga eins fljótt og auðið er.
Vekjum athygli á kafla II „Ýmsar tilkynningar og aðvaranir“ í Tilkynningum til sjófarenda en þar má finna lista yfir tímabundnar (T) tilkynningar sem eru í gildi á hverjum tíma.
Samhliða útgáfu Tilkynninga til sjófarenda er gefið út yfirlit yfir gild sjókort og tilkynningar til sjófarenda í þau, sjá hér.
Vitaskrá er á vefnum en hún er einnig uppfærð ef verða breytingar á því sem þar er skráð, sjá hér.
Það eru síðan vinsamleg tilmæli til sjófarenda og annarra hagsmunaaðila að tilkynna strax til Landhelgisgæslunnar, t.d. í netfangið sjokort@lhg.is eða með öðrum hætti, verði þeir varir við eða uppgötvi siglingahættur sem eru ekki sýndar í sjókortum, skekkjur í sjókortum eða öðrum leiðbeiningum fyrir sjófarendur.
Á vef Landhelgisgæslunnar má finna ýmsan fróðleik eins og;
Leiðréttingar í sjókort eru birtar í Tilkynningum til sjófarenda.
Vitaskrá er uppfærð samhliða Tilkynningum til sjófarenda.
Kortaskrá sem inniheldur upplýsingar um sjókort, handbækur og sjókortasala, er uppfærð reglulega.
Sjávarfallatöflur eru gefnar út fyrir hvert ár, aðgengilegur á vefnum.