Veglegt málverk af Freyju afhent Landhelgisgæslunni

27. mars, 2026

Listamaðurinn Jóhann Eyvindsson færði Landhelgisgæslu Íslands veglegt málverk að gjöf á dögunum í tilefni 100 ára afmælisárs Landhelgisgæslunnar. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Gæslunnar, tók við verkinu sem Jóhann málaði af varðskipinu Freyju.

Verkinu verður fundinn góður staður í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli.

Landhelgisgæslan þakkar Jóhanni kærlega fyrir þessa glæsilegu gjöf.