
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á öðrum tímanum í dag vegna skipverja sem slasaðist á fæti um borði í íslensku fiskiskipi sem statt var út af Látrabjargi. Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tók stefnuna út fyrir Bjargtanga þar sem skipið hafði verið nærri bjargi vegna sjólags og aðstæðna.
Þegar þyrlan nálgaðist fengust þær upplýsingar frá skipstjóra skipsins að haugasjór væri á staðnum og því var ákveðið að skipið myndi reyna að komast inn fyrir Látrabjarg í betri aðstæður. Þyrlan flaug yfir skipið og lét áhöfn þess vita að framundan væri mun betra sjólag og var beðið eftir því að skipið væri komið þangað áður en hífingar hófust.
Læknir og sigmaður þyrlunnar fóru um borð í skipið og huguðu að skipverjanum og undirbjuggu hann fyrir hífingu um borð í þyrluna. Vel gekk að koma manninum um borð í þyrluna sem var í kjölfarið fluttur til Reykjavíkur.