1200 kíló af rusli með TF-LIF

TF-LIF sótti 17 troðfulla sekki af fjörurusli.

  • 20191015_111424-01

17.10.2019 Kl: 15:40

Áhöfnin á TF-LIF aðstoðaði Bláa herinn í vikunni með því að sækja 17 troðfulla sekki af fjörurusli sem vaskur hópur hafði fyllt í nokkrum ferðum sínum við Húshólma í nágrenni Grindavíkur. Samtals var um 1200 kíló af rusli ferjað í ruslagám í fimm ferðum þyrlunnar. Landhelgisgæslan er stolt af því að geta aðstoðað í verkefni sem þessu enda skiptir það okkur öll máli að landið okkar sé hreint og fagurt.

TF-LIF og Blái herinn