Æft með Gísla Jóns
Reglulegar æfingar björgunarskipa Landsbjargar og þyrla Landhelgisgæslunnar eru þýðingarmiklar.
12.6.2020 Kl: 16:18
Áhafnir þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar halda reglulegar sameiginlegar æfingar. Á miðvikudag fór slík æfing fram þegar áhöfnin á Gísla Jóns og áhöfnin á TF-GRO æfðu í einstöku veðri á Vestfjörðum á miðvikudag.
Hífingar fóru fram úr björgunarskipinu, gúmmíbjörgunarbát og sjó. Æfingin stóð yfir í tæpa klukkustund og gekk eins og best verður á kosið.
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar spila ákaflega mikilvægt hlutverk fyrir öryggi sjófarenda líkt og þyrlur Landhelgisgæslunnar. Því er þýðingarmikið að áhafnir þessara björgunartækja séu samstilltar þegar á reynir.
Þyrlulæknir kemur um borð í Gísla Jóns.
Jóhann Eyfeld, sigmaður, og Guðrún María Svavarsdóttir, læknir.
Börurnar koma um borð.
TF-GRO og sigmaður Landhelgisgæslunnar.
Anton Örn Rúnarsson, kafari.