Áhafnir fiskibáta brugðust skjótt við þegar leki kom að bát á Skagafirði

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð frá bátsmanni tíu metra langs fiskibáts á Skagafirði á fimmta tímanum í dag.

  • Stjornstod-LHG

21.4.2020 Kl: 16:56

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð frá bátverja tíu metra langs fiskibáts á Skagafirði á fimmta tímanum í dag. Einn var um borð og var talsverður leki kominn að bátnum. Þyrla Landhelgisgæslunnar sem var á æfingu hélt strax áleiðis á staðinn auk þess sem sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru ræstar út.

Þá hafði Landhelgisgæslan samband við áhafnir fiskiskipa og báta í grenndinni, sem og báta sem voru löndun á Sauðárkróki, og óskaði eftir því að þær héldu á staðinn. Áhafnir fiskibátanna brugðust skjótt við og rúmum tuttugu mínútum eftir neyðarkallið voru þær búnar að koma fiskibátnum í tog og halda nú á Sauðárkrók. Þegar þangað verður komið mun slökkvilið staðarins dæla upp úr bátnum.

Landhelgisgæslan kann áhöfnum fiskibátanna og öllum þeim sem komu að málinu bestu þakkir fyrir skjót viðbrögð.