Liður í Norður-Víkingi 2022
11.4.2022 Kl: 13:10
Áhöfnin á varðskipinu Freyju tók þátt í svokallaðri uppgönguæfingu á dögunum þar sem hluti áhafnarinnar fór um borð í þýsku freigátuna Sacsen. Áhafnir Landhelgisgæslunnar hljóta margvíslega þjálfun til að bregðast við ólíkum og krefjandi aðstæðum á hafinu umhverfis Ísland. Norska herskipið Thor Heyerdahl tók einnig þátt í æfingunni sem var liður í Norður-Víkingi 2022.Á Norður-Víkingi hefur áhöfnum Landhelgisgæslunnar gefist mikilvægt tækifæri til að samhæfa aðgerðir með samstarfsþjóðunum, einkum og sér í lagi á sviði leitar og björgunar.Ljósmyndir: Guðmundur St. Valdimarsson.Á æfingunni var uppganga æfð.
Einar H. Valsson, skipherra.
Aðgerðin kortlögð.
Birgir Hreiðar Björnsson, yfirstýrimaður.