Áhöfnin á TF-GRO sótti veikan skipverja í grænlenskt línuskip

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar sótti veikan skipverja í grænlenskt línuskip sem statt var 144 sjómílur vestur af Bjargtöngum.

  • IMG_3476

17.1.2020 Kl: 14:48

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar sótti veikan skipverja í grænlenskt línuskip sem statt var 144 sjómílur vestur af Bjargtöngum. Skipið var á milli Grænlands og Íslands þegar beiðni um aðstoð barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.

 TF-GRO tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum í morgun og eftir um tveggja tíma flug hófst áhöfnin handa við að hífa skipverjann um borð. Eins og sést á meðfylgjandi myndskeiði var myrkur á svæðinu og lélegt skyggni. 

Myndbandið sýnir undirbúning sigmannsins um borð í þyrlunni og alveg þar til hann er kominn um borð í skipið. TF-GRO lenti á ellefta tímanum á Reykjavíkurflugvelli og þaðan var skipverjinn fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.

TF-GRO sækir veikan skipverja í grænlenskan togara