Varðskipið Þór, rannsóknarskipið Árni Friðriksson og sjóbjörgunarsveitir kallaðar út.
11.3.2021 Kl: 15:56
Varðskipið Þór, rannsóknarskipið Árni
Friðriksson og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar
voru kallaðar út á þriðja tímanum í dag vegna Breiðafjarðarferjunnar
Baldurs sem varð vélarvana mitt á milli Flateyjar og Stykkishólms. Stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu um bilunina klukkan 14:27. 28 eru um borð
í Baldri, 20 farþegar og átta manna áhöfn. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson
verður komið að Baldri á fimmta tímanum og er gert ráð fyrir að ferjan verði
tekin í tog til Stykkishólms.
Varðskipið Þór er jafnframt á leið á staðinn en
skipið var statt í Helguvík þegar útkallið barst. Baldur varpaði akkerum
fljótlega eftir að bilunarinnar varð vart til að hindra rek. Akkerin halda vel.
Vindátt er úr norðaustri og ef rek yrði á skipinu ræki það frá landi og
grynningum. Ástandið um borð er tryggt en til að gæta fyllsta öryggis var
þyrlusveit Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út og verður í viðbragðsstöðu ef á
þarf að halda.
Einar Valsson skipherra á varðskipinu Þór. Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson.