Fjórum bjargað eftir að lítið fiskiskip tók niðri á grynningu

Áhöfn fiskibáts í grennd við slysstað bjargaði áhöfninni.

  • TF-EIR6
4.10.2020 Kl: 21:41


Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðaustur- og Austurlandi voru kallaðar út á mesta forgangi eftir að lítið fiskiskip tók niðri á grynningu austur af Papey í kvöld. Leki kom að fiskiskipinu og fjórir voru um borð. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá áhöfn skipsins klukkan 20:55. Þyrla Landhelgisgæslunnar var á æfingu þegar útkallið barst og tók rakleiðis stefnuna á slysstað. 

Jafnframt óskaði Landhelgisgæslan eftir því að skip og bátar í grenndinni héldu á staðinn. Klukkan 21:20 hafði tekist að bjarga öllum fjórum skipverjunum um borð í fiskibát sem kom á staðinn. 

Fiskibáturinn er nú í drætti áleiðis til Djúpavogs. Reynt verður að halda honum á floti með dælum um borð. Hafdís, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar er komið á staðinn en björgunarskipin frá Hornafirði og Neskaupstað hafa verið afturkölluð. Þyrla Landhelgisgæslunnar verður í viðbragðsstöðu á Hornafirði meðan á björgunarstörfum stendur. Umhverfisstofnun hefur verið upplýst um málið.