Freyja komin til landsins

Varðskipið Freyja lagðist að bryggju á Siglufirði á öðrum tímanum í dag eftir fimm daga siglingu frá Rotterdam.

  • _O0A5842

6.11.2021 Kl: 15:49

Varðskipið Freyja lagðist að bryggju á Siglufirði á öðrum tímanum í dag eftir fimm daga siglingu frá Rotterdam. Fjölmargir lögðu leið sína á Hafnarbryggjuna á Siglufirði til að berja skipið augum þegar það kom til hafnar í fylgd varðskipsins Týs, þyrlu Landhelgisgæslunnar og björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Að auki keyrðu viðbragðsaðilar á Norðurlandi í samfloti frá Strákagöngum skipinu til heiðurs auk þess sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar skaut þremur heiðursskotum úr fallbyssu þegar skipið kom siglandi inn fjörðinn.


Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, og Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar héldu ávarp á bryggjunni og óskuðu Landhelgisgæslunni og íslensku þjóðinni til hamingju með varðskipið Freyju. Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, blessaði skipið áður en gestir gengu um borð í Freyju.

Í mars 2021 tilkynnti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, að ráðist yrði í kaup á varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands sem kæmi í stað varðskipsins Týs. Þá var jafnframt ákveðið að skipið myndi bera nafnið Freyja, en skip og loftför Landhelgisgæslunnar hafa í gegnum tíðina sótt nöfn sín í norræna goðafræði. Í apríl 2021 var efnt til útboðs og að því loknu var tilboði tekið í skip sem smíðað var í Suður-Kóreu árið 2011 og nýtt sem þjónustuskip fyrir olíuiðnaðinn. Kaupverðið nam rúmum 1,8 milljörðum króna.


Landhelgisgæslan og dómsmálaráðuneytið tóku í sameiningu þá ákvörðun að heimahöfn varðskipsins Freyju yrði Siglufjörður. Með auknum skipaferðum um norðurslóðir fjölgar ferðum stórra flutninga- og olíuskipa með austur- og norðurströndum Íslands. Útlit er fyrir að ferðum skemmtiferðaskipa fjölgi einnig og þarf ekki að fjölyrða um þær ógnir sem lífríkinu er búin ef hætta steðjar að. Klukkustundir til eða frá geta þá skipt sköpum. Með Þór í Reykjavík og Freyju á Siglufirði hefur viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar umhverfis landið verið aukin og hægara verður um vik að tryggja öryggi sjófarenda, landsmanna og auðlinda í hafi.


Varðskipið Freyja er að miklu leyti sambærilegt varðskipinu Þór hvað stærð og aðbúnað varðar en býr yfir meiri dráttargetu.

Með tilkomu Freyju í flota Landhelgisgæslunnar hefur Landhelgisgæslan á að skipa tveimur afar öflugum varðskipum, sérútbúnum til að sinna löggæslu, leit og björgun á krefjandi hafsvæðum umhverfis Ísland.


Myndir: Árni Sæberg.
_O0A5719Freyja við bryggju á Siglufirði.
_S4I7276Einar H. Valsson, skipherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
_O0A5977Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, gengur fyrstur um borð í varðskipið Freyju.
_O0A5790Frá Hafnarbryggjunni á Siglufirði. Fjölmenni var saman komið þrátt fyrir slæmt veður.
_O0A5986Georg Lárusson heilsar Einari H. Valssyni skipherra.
_O0A5776,,Að flagna er fararheill" Sagði Guðni Th. Jóhannesson í ræðu sinni og minntist á að málning varðskipanna Óðins og Ægis hefði einnig flagnað á heimleiðinni. 
_O0A5915Elías Pétursson flutti ávarp fyrir hönd Fjallabyggðar og Georg Lárussyni var færður blómvöndur vegna komu Freyju. 
_S4I7261Úr brú Freyju. Gestir og gangandi skoðuðu skipið.