Haldið til Eskifjarðar
20.2.2022 Kl: 9:43
Varðskipið Freyja hefur síðan í gærkvöld haft norskt loðnuskip í togi sem fékk veiðarfæri í skrúfuna. Farið verður með skipið að bryggju á Eskifirði en skipin eru nú þegar komin inn á Reyðarfjörð. Skipstjóri norska skipsins hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um kvöldmatarleitið gær og óskaði eftir aðstoð.
Áhöfnin á varðskipinu Freyju hefur undanfarna daga verið við eftirlitsstörf á loðnumiðum austur af landinu og gat því brugðist skjótt við beiðninni og haldið á staðinn.
Á tíunda tímanum var línu skotið yfir í norska skipið og dráttartaug fest. Um miðnætti hafði áhöfn norska skipsins lokið við að taka nótina um borð og var þá haldið áleiðis inn á Eskifjörð. Gert er ráð fyrir að norska skipið verði komið að bryggju eftir um tvær klukkustundir.
Friðrik Höskuldsson, yfirstýrimaður, og Einar H. Valsson, skipherra.
Frá aðgerðum gærkvöldsins.