Freyja og Gná fylgdu Stellu til hafnar

3. október, 2023

Björgunarbáturinn Stella

3.10.2023 Kl: 10:35

Landhelgisgæsla Íslands óskar
björgunarsveitinni Sæbjörgu innilega til hamingju með björgunarbátinn Stellu
sem vígður var við hátíðlega athöfn á höfninni á Flateyri um helgina. Báturinn
er nýsmíði frá Rafnari og er annar tveggja báta af þessari tegund sem smíðaðir voru
fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg. Hinn báturinn fór til Húsavíkur. Varðskipið
Freyja og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar tóku þátt í hátíðahöldum vegna komu
bátsins á Flateyri um helgina og fylgdu nýja bátnum til hafnar.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, sagði komu bátsins marka stórt skref í átt að auknu öryggi
á svæðinu og væri mikið framfararskref.

Landhelgisgæslan tók þátt í
hönnun bátsins fyrir rúmum áratug og hefur haft varðbátinn Óðinn í flota sínum
frá árinu 2015 sem hefur reynst einstaklega vel.

IMG_2053TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar, lendir á Flateyri. 

IMG_2248Frá varðskipinu Freyju. 

IMG_1858_1696329643879Björgunarbáturinn Stella frá Flateyri. 

Flateyri-3