Grindhvalurinn aflífaður að beiðni dýralæknis

Séraðgerða- og sprengjueyðingarsvið Landhelgisgæslunnar kallað út.

26.8.2019 Kl: 18:10

Frá því í morgun hafa björgunarsveitarmenn og aðrir viðbragðsaðilar unnið að björgun grindhvals sem rak að landi í Káravík við Seltjarnarnes. Eftir nokkurra klukkustunda björgunaraðgerðir var ljóst að mjög hafði dregið af hvalnum og var það mat dýralæknis Matvælastofnunar að nauðsynlegt væri að binda enda á þjáningar dýrsins.

 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór þess á leit við Landhelgisgæslu Íslands að séraðgerða- og sprengjueyðingarsvið LHG yrði kallað út með viðeigandi búnað. Að beiðni dýralæknis MAST var dýrið aflífað á sjötta tímanum. Í framhaldinu var dýrinu sökkt.