Hafísinn færist nær

Hafísinn er nú 12 sjómílur frá Horni þar sem hann er næstur landi.

  • Hafis_1528192892482

Mikilvægt er að sjófarendur séu meðvitaðir um legu hafíssins sem er nú 12 sjómílur frá Horni þar sem hann er næstur landi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst gervitunglamynd laust eftir miðnætti sem tekin var klukkan 19:08 í gærkvöldi. Hún sýnir ísröndina fyrir norðan land. TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, fer í annan ískönnunarleiðangur síðar í dag.

Landhelgisgæslunni bárust þessar myndir frá skipi sem statt er við jaðarinn á Strandagrunni norðaustur af Hornbjargi.

Img_3611_1528192940688Img_3610Img_3609

Hafis_1528192892482