Jólagleði um borð í varðskipinu Þór
Jólaandinn sveif yfir vötnum.
23.12.2024 Kl: 10:25
Áhöfnin á varðskipinu Þór kom saman á vetrarsólstöðum og hélt sín árlegu litlu jól og jólabingó.
Dagurinn hófst með hefðbundnu sniði en boðið var upp á skötu og saltfisk í hádeginu sem hefur verið til siðs síðan 1926.
Upp úr hádegi, sveif svo jólaandinn yfir vötnum um borð í varðskipinu, þrátt fyrir að áhöfnin hefði í nógu að snúast enda verður varðskipið á bakvakt yfir jól og áramót.
Þegar líða fór að kveldi, klæddi áhöfnin sig upp í betri fötin og mætti til kvöldverðar þar sem kvartett sveit varðskipsins „Vitringarnir fjórir“ spiluðu og sungu nokkur vel valin jólalög áður en áhöfnin gæddi sér á dýrindis jólakræsingum sem brytinn hafði töfrað fram. Öll áhöfnin gekk svo í að ganga frá eftir matinn.
Á áttunda tímanum hófst svo hið árlega jólabingó þar sem áhöfn mætti saman í sínum jólapeysum og jólasveinninn lét sig ekki vanta. Spilaðar voru 44 umferðir og voru veglegir vinningar voru í boði, sem okkur bárust frá 25 fyrirtæki úr ýmsum áttum. Við kunnum velunnurum okkar og fyrirtækjum sem lögðu okkur til þessa glæsilegu vinninga, hinar bestu þakkir fyrir.
Áhöfnin vildi láta gott af sér leiða og var með fjáröflun í leiðinni. Hver og einn í áhöfninni keypti bingó spjöld og rann allur ágóðinn til Barnaspítala Hringsins. Alls söfnuðust 155.000 krónur og rann ágóðinn óskertur til Barnaspítala Hringsins.
Áhöfnin á varðskipinu Þór þakkar samfylgdina á árinu sem er að líða og sendir landsmönnum öllum, fjölskyldum, samstarfsfélögum og vinum óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Sungið af innlifun.
Vitringarnir fjórir syngja.
Veitingarnar voru glæsilegar.
Jólasveinninn fór á sjó.