Konudagurinn er í dag

Landhelgisgæslan tók forskot á sæluna og hélt upp á konudaginn fyrir helgi.

  • IMG_0908


24.02.2019 Kl: 08:09

Landhelgisgæslan tók forskot á sæluna og hélt upp á konudaginn fyrir helgi. Við hjá Landhelgisgæslunni erum afar heppin að eiga svona frábærar samstarfskonur sem áttu það svo sannarlega skilið að hefja helgarfríið með smá dekri og óvæntum glaðningi. Kæru konur, innilega til hamingju með konudaginn.

AsBoðið var upp á veitingar frá 17 sortum og konurnar fengu einnig óvæntan glaðning. 

IMG_0900Uppátækið heppnaðist vel. 

IMG_0904Kaffistofa Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð. 

IMG_0894