Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu vegna haustlægðarinnar

Hæsta útreiknaða stórstreymisflóð ársins er á morgun.

  • Olduspa

31.8.2023 Kl: 9:59

Ekki hefur farið framhjá neinum að fyrsta haustlægðin nálgast landið og hefur Veðurstofan gefið út viðvaranir vegna hennar, en veðurspár gera ráð fyrir hvassviðri af suðaustri í fyrstu og síðan suðvestri. 

Landhelgisgæslan vekur á því athygli að á morgun, föstudaginn 1. september, er stórstreymt og er um að ræða hæsta útreiknaða stórstreymisflóð ársins, en fyrir Reykjavík reiknast flóðhæðin 4,6 metrar. 

Um helgina verður því há sjávarstaða og má gera ráð fyrir að samhliða lægðinni verði nokkuð þung alda og áhlaðandi með suður- og vesturströndinni, sem gerir sjávarhæð mögulega hærri en útreikningar gefa til kynna. Þá er ágætt að hafa í huga að á þessum árstíma eru síðdegisflóðin hærri en morgunflóðin.

Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu við sjávarsíðuna og að hugað verði að skipum og bátum í höfnum.

Olduspa

Ölduspá Vegagerðarinnar sem gildir kl 2100 laugardagskvöldið 2. september gerir ráð fyrir allt að 8-10 metra ölduhæð suðvestur af landinu. (www.sjolag.is)