Leitað með neðansjávarfari í dag

Neðansjávarfarið er útbúið sérstakri hliðarhljóðsjá sem nýtist við athugun sjávarbotnsins.

  • Image00003_1670319624938

6.12.2022 Kl: 9:18

Áhöfnin á varðskipinu Þór heldur leit áfram í dag að skipverjanum sem féll útbyrðis á laugardag úti fyrir Garðskaga. Leitað verður með neðansjávari frá Teledyne Gavia á svæðinu þar sem talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð. Neðansjávarfarið er útbúið sérstakri hliðarhljóðsjá auk myndavélar sem nýtist við athugun sjávarbotnsins.

Sérfræðingur frá Teledyne Gavia fór um borð í Þór í morgun ásamt sérfræðingum frá sjómælinga- og siglingaöryggisdeild Landhelgisgæslunnar til að aðstoða við leitina. Þyrla Landhelgisgæslunnar verður einnig nýtt til leitar í dag. Leit hefst í birtingu.

Meðfylgjandi eru myndir frá varðskipinu Þór sem teknar voru í gær ásamt myndum af neðansjávarfarinu.

Gavia