Loftför Landhelgisgæslunnar í 278 útköll árið 2018

Enn eitt metárið í fjölda útkalla

  • TF LÍf í Grænlandi

3.1.2018 Kl: 13:55

Alls sinntu loftför Landhelgisgæslunnar 278 útköllum árið 2018 og hafa þau aldrei verið fleiri. Það er um 8% aukning frá árinu 2017 en þá fóru þyrlur og flugvél stofnunarinnar í 257 útköll. Strax í nóvember hafði met fyrra árs fallið en á síðasta ári voru 180 sjúkir eða slasaðir fluttir með loftförunum. Helmingur þeirra voru erlendir ríkisborgarar.  Útköllin hafa aukist jafnt og þétt á undanförnum árum og eru tæplega 74% fleiri árið 2018 en árið 2011 þegar þau voru 160. Metfjöldi útkalla ársins 2018 kemur Landhelgisgæslunni ekki á óvart ef tekið er mið af þróun síðastliðinna ára. Alls fóru loftförin TF-LIF, TF-GNA, TF-SYN og TF-SIF í 731 flugferð á árinu en flugferðirnar voru 628 árið 2017.