Mikið leitað til stjórnstöðvar vegna veikinda á sjó

- Sjófarendur á varðbergi og gæta fyllstu varúðar

  • 20200402_150539335_iOS

2.4.2020 Kl: 15:47

Álag á stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur aukist síðustu daga og fjölmargar tilkynningar borist um veikindi sjófarenda.

Varðstjórar hafa því verið milliliðir við hafnir, sóttvarnalækni, lögreglu og heilbrigðisyfirvöld á hverjum stað og leiðbeint áhöfnum báta og skipa vegna slíkra mála. Landhelgisgæslan verður vör við að áhafnir gæti fyllstu varúðar og séu varar um sig ef vart verður við veikindi um borð í skipum. Það er afar jákvætt að skipverjar séu á varðbergi ef grunur er um smit um borð.

Varðstjórar stjórnstöðvar hafa staðið frammi fyrir ýmsum nýjum áskorunum sem krefjast aukins samstarf við fjölmarga aðila og hefur samstarfið verið til fyrirmyndar. 

Vaktafyrirkomulagi varðstjóranna hefur verið breytt og þeir lagt töluvert á sig svo tryggja megi að starfsemi stjórnstöðvarinnar haldist órofin.

Sjósókn umhverfis landið er góð en um 300 skip og bátar voru á miðunum klukkan níu í morgun. Varðskipin Þór og Týr eru bæði við eftirlit á hafinu. Ferðir varðskipanna voru lengdar í síðasta mánuði úr þremur vikum í fimm. Úthald Týs hefur til að mynda staðið yfir í mánuð og lýkur ekki fyrr en í næstu viku en þá hefur varðskipið Þór verið í tvær vikur á sjó.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar náði í sýni til Vestmannaeyja um síðustu helgi og áhafnir loftfara Landhelgisgæslunnar eru til taks ef flytja þarf COVID-19 smitaða á sjúkrahús í Reykjavík.

20200402_145130573_iOSVarðstjórar í stjórnstöð hafa lagt mikið á sig til að rekstur stjórnstöðvarinnar haldist órofinn. Hér má sjá varðstjórana Rögnvald Úlfarsson og Bjarka Sigþórsson.

20200402_131956568_iOSÁsgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag.
20200402_144437266_iOSStjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.