Klukkan 15:15 náðist samband við flugmann vélarinnar sem hafði verið að færa vélina og við það fór neyðarsendir hennar í gang. Allt viðbragð var þá afturkallað.
28.10.2023 Kl: 15:37
Mikill
viðbúnaður var hjá Landhelgisgæslunni, björgunarsveitum og lögreglu vegna
neyðarboðs sem kom frá eins hreyfils flugvél í Fljótavík á þriðja tímanum í dag.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk neyðarboð frá vélinni klukkan 14:39.
Vélinni
var flogið frá Reykjavík til Fljótavíkur í morgun og hafði flugmaðurinn
staðfest komu til Fljótavíkur um hádegisbil. Rúmum tveimur og hálfum tíma síðar
fór neyðarsendir vélarinnar í gang í Fljótavík og ekki tókst að ná sambandi við
flugmann vélarinnar.
Þá var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út á mesta
forgangi sem og björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og
lögreglan á Vestfjörðum. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð var sömuleiðis virkjuð.
Klukkan 15:15 náðist samband við flugmann vélarinnar sem hafði verið að færa
vélina og við það fór neyðarsendir hennar í gang. Allt viðbragð var þá afturkallað.