Prince of Wales kominn til Reykjavíkur

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, tók á móti skipherrum bresku herskipanna.

  • Georg-og-Higham

4.4.2022 Kl: 14:12

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, tók á móti Stephen Higham, skipherra flugvélamóðurskipsins Prince of Wales, sem kom til hafnar í Reykjavík í morgun, auk Christopher A L‘Amie, skipherra breska herskipsins Richmond, í höfuðstöðvum Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.

Prince of Wales hefur ekki áður komið í erlenda höfn og því er Reykjavíkurhöfn fyrsti erlendi áfangastaður skipsins.

Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs og Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs, sátu einnig fundinn fyrir hönd Landhelgisgæslunnar en rætt var um getu þessara öflugu skipa og hlutverk þeirra í framtíðinni.

Fram kom á fundinum að breski sjóherinn áætlar að Prince of Wales verði við þjónustu a.m.k. næstu 55 árin.

Skipherrarnir afhentu Landhelgisgæslunni skyldi í þakklætisskyni undir lok heimsóknarinnar.

Hopmynd_1649081905016Auðunn F. Kristinsson, Ásgrímur L. Ásgrímsson, Stephen Higham, Christopher A L'Amie og Georg Kr. Lárusson. 

Georg-og-HighamStephen Higham, skipherra, og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands. 

Georg-og-AmieChristopher A L'Amie og Georg Kr. Lárusson.

PWPrince of Wales kom til hafnar í Reykjavík í morgun.