Samæfing varðskipa og þyrlu

13. september, 2019

Varðskipið Þór og Týr æfðu saman á Faxaflóa í vikunni.

13.9.2019 

Áhafnir varðskipanna Þórs og Týs héldu sameiginlegar leitar- og björgunaræfingar á Faxaflóa í vikunni. Æfingin var liður í að stilla saman strengi áhafna beggja varðskipa en ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar tók sömuleiðis þátt.

Í fyrsta hluta æfingarinnar, sem fram fór á miðvikudag, fengu áhafnirnar upplýsingar um að lítillar flugvélar væri saknað og að þeir sem í vélinni voru væru líklega í björgunargöllum. Leit að áhöfn flugvélarinnar var skipulögð og gekk vel.

Jafnframt var leitað að „kajakræðara“ sem hafði ekki skilað sér til Akraness á tilsettum tíma eftir að hafa róið frá Borgarnesi nokkrum tímum áður. Alls voru fjórir bátar sendir til leitar með ströndinni að austanverðu frá Landhólma og að brottfararstað. TFGRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, aðstoðaði við leitina. Eftir nokkra leit fannst „kajakræðarinn“ í sjónum og var fluttur um borð í varðskipið Þór til aðhlynningar.

Á fimmtudag fóru svo fram dráttaræfingar þegar Þór var tvívegis tekinn í tog af varðskipinu Tý.

Æfingar sem þessar eru sérlega mikilvægar og heppnuðust afar vel. Meðfylgjandi myndir tók Guðmundur St. Valdimarsson.

Samaefing-vardskipa-dagur-1-2-NotaÁhafnirnar að störfum á æfingunni.Samaefing-vardskipa-dagur-1-24-NotaVarðskipið Þór í öllu sínu veldi.Samaefing-vardskipa-dagur-1-13-NotaLéttbátur af varðskipinu Tý.Samaefing-vardskipa-dagur-2-13-NotaÞór tekinn í tog.Samaefing-vardskipa-dagur-2-2-NotaÆfingin gekk afar vel. Samaefing-vardskipa-dagur-2-1-NotaBræðurnir Þór og TýrSamaefing-vardskipa-dagur-1-6-NotaMyndir: Guðmundur St. Valdimarsson.