Samkomulag um fiskveiðieftirlit undirritað

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, og Ögmundur Haukur Knútsson, Fiskistofustjóri, undirrituðu samkomulag um samvinnu og samstarf í tengslum við fiskveiðieftirlit.

  • Fiskistofa

23.6.2023 Kl: 13:15

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, og Ögmundur Haukur Knútsson, Fiskistofustjóri, undirrituðu  samkomulag um samvinnu og samstarf í tengslum við fiskveiðieftirlit í vikunni.

Landhelgisgæsla Íslands og Fiskistofa hafa um langt skeið haft með sér samvinnu um fiskveiðieftirlit. 

Samkomulag þetta byggir því á árangursríku samstarfi stofnananna og vilja beggja aðila til að efla samstarf sín á milli í tengslum við eftirlit með fiskveiðum. 

Nú er verið að formfesta þessa samvinnu, tryggja upplýsingamiðlun á milli stofnananna og samhæfa viðbrögð, markmið og áherslur í fiskveiðieftirliti.

Fiskistofa1Georg og Ögmundur undirrita samkomulagið.