Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar í aðalhlutverki í jólakveðju Atlantshafsbandalagsins

Jólakveðja NATO var tekin upp hér á landi í ár

  • 2_1608131219653

16.12.2020 Kl: 14:50

Liðsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingarsveitar Landhelgisgæslunnar og eitt af vélmennum sveitarinnar eru í aðalhlutverki í bráðskemmtilegri jólakveðju Atlantshafsbandalagsins sem tekin var upp hér á landi. 

Sveitin hefur um árabil tekið þátt í friðargæslu- og mannúðarverkefnum undir merkjum Atlantshafsbandalagsins, meðal annars með þjálfun annarra sprengjusérfræðinga í sprengjueyðingu á átakasvæðum. Þá sér sveitin um Northern Challenge sem er alþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga og er haldin hér á landi árlega. Atlantshafsbandalagið er bakhjarl æfingarinnar. 

Jón Marvin Pálsson og Andri Rafn Helgason, liðsmenn sveitarinnar, sýna lipra leiklistarhæfileika að ógleymdu vélmenni sveitarinnar.

Séraðgerðasveit og jólakveðja NATO

5_1608131219654Andri tekur við gjöf frá vélmenninu.
Klipp-2Jón Marvin tekur upp sína gjöf.
3_1608131219641Vélmennið góða.2_1608131219653Jólakveðjan var tekin upp hér á landi.4_1608131219650