Röntgentæki sýndi að kúlan var gegnheil og örugg til flutnings.
30.1.2020 Kl: 16:42
Starfsmenn Byggðasafns Vestmannaeyja höfðu samband við
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á dögunum vegna fallbyssukúlu sem fannst í
kjallaranum innan um aðra muni safnsins. Enginn þekkti uppruna kúlunnar og því
var ekki vitað hvort hún væri enn virk.
Landhelgisgæslan hafði strax samband
við sérsveit Ríkislögreglustjóra og lögregluna í Vestmannaeyjum og upplýsti um
málið.
Tveir liðsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingarsveitar fóru til
Vestmannaeyja í morgun. Þeir byrjuðu skoðuðu kúluna og mælda. Fyrst með þykktarmæli
og síðan með röntgentæki sem sýndi að kúlan var gegnheil og örugg til
flutnings.
Sprengjusérfræðingarnir tóku kúluna með til Reykjavíkur þar sem mat
verður lagt á uppruna hennar. Nokkuð öruggt þykir að hún sé frá tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar.
Sprengjusérfræðingarnir telja nær öruggt að fallbyssukúlan sé frá tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Fallbyssukúlan fannst innan um aðra muni Byggðasafns Vestmannaeyja.