Sérstakrar heilbrigðisyfirlýsingar skipa krafist vegna COVID-19

Vegna aðstæðna nú ber skipstjórum og skipslæknum, ef þeir eru um borð, að fylla út sérstakt eyðublað sem getur gefið upplýsingar um COVID-19 smit.

  • _S4I7004

6.3.2020 Kl: 16:17

Öll skip sem koma til landsins erlendis frá þurfa nú að veita Landhelgisgæslunni sérstaka heilbrigðisyfirlýsingu vegna COVID-19 áður en þau fá heimild til að koma til hafnar. Undir venjulegum kringumstæðum ber skipum að senda Landhelgisgæslunni almenna heilbrigðisyfirlýsingu sem og aðrar upplýsingar.

Vegna aðstæðna nú ber skipstjórum og skipslæknum, ef þeir eru um borð, að fylla út sérstakt eyðublað sem getur gefið upplýsingar um COVID-19 smit.

Skipum verður ekki hleypt til hafnar nema eyðublaðið berist Landhelgisgæslunni. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sér til þess að eyðublaðið er sent til skipanna. Það má sjá hér.

Vakni grunur um sýkingu af völdum COVID-19 um borð í skipi, tilkynnir Landhelgisgæslan málið til sóttvarnalæknis. Í slíkum tilfellum hafa sóttvarnalæknir, lögregla, Landhelgisgæslan, tollgæsla, hafnaryfirvöld hluteigandi hafnar, Samgöngustofa og skipstjóri samráð sín á milli um að hleypa farþegum ekki frá borði auk þess sem skipinu verður ekki heimilt að koma að bryggju á meðan greining fer fram.

Það er svo í höndum sóttvarnalæknis að taka ákvörðun um næstu skref í samráði við aðra viðbragðsaðila.

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins er væntanlegt til Reykjavíkur á mánudag. Landhelgisgæslan telur ríka ástæðu til að herða eftirlit með skipakomum til landsins á næstunni í samráði við sóttvarnalækni, Samgöngustofu, hafnaryfirvöld og aðra viðbragðsaðila.