Sigurður Steinar sæmdur fálkaorðunni

Fyrir framlag til landhelgisgæslu og björgunarstarfa.

  • 1053914
18.06.2018

Forseti Íslands sæmdi Sigurð Steinar Ketilsson, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til landhelgisgæslu og björgunarstarfa. Sigurður Steinar er ákaflega vel að viðurkenningunni kominn enda átti hann farsælan hálfar aldar starfsferil hjá Landhelgisgæslu Íslands en hann lét af störfum í apríl. Landhelgisgæslan óskar Sigurði Steinari til hamingju með viðurkenninguna.

Img_1530Sigurður Steinar kemur í land í sinni síðustu ferð sem skipherra. Ljósmynd: Jón Páll Ásgeirsson