Strandveiðar hafnar

Annríki í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar

  • Stjornstod-LHG_1600695887473

2.5.2023 Kl: 15:33

Mikið var um að vera í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag, á fyrsta degi strandveiðanna. Í hádeginu voru um sjö hundruð skip í fjareftirliti stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.

Þrír bátar höfðu samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í morgun vegna vélavandræða. Tveir þeirra voru dregnir til hafnar af björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fiskibátur dró þann þriðja til hafnar.

Landhelgisgæslan áréttar að allir bátar sem fara til strandveiða þurfa að tilkynna Landhelgisgæslunni brottför til hafnar á VHF rás 9 eða með smáforritinu VSS. Þá er einnig skilyrði að haffæri séu í gildi en óheimilt er að hefja sjóferð nema að gilt haffærisskírteini sé um borð og áhöfn sé lögskráð.

Þá minnir Landhelgisgæslan einnig á að á sjó er skylduhlustvarsla á VHF rás 16. Rásin er neyðar- og uppkallsrás og því mikilvægt að sjófarendur viðhafi hlustun á rásina allan tímann sem skip er á sjó. Þannig geta önnur skip og bátar, sem og stjórnstöð LHG náð sambandi um borð sé þess þörf. Slíkt er sérlega mikilvægt ef slys verður því næstu skip eru mögulega fyrst til björgunar. Sé talstöð stillt á vinnurás skal nota svokallaða tvöfalda hlustun eða „dual watch“ til að talstöðin fylgist einnig með rás 16.

Stjornstod-LHG1_1600695887475Úr stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands.