TF-GRO komin til landsins

Lenti á Reykjavíkurflugvelli í kvöld.

  • IMG_1278

6.7.2019 Kl 22:40

TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, er komin til landsins en hún lenti í fyrsta sinn á Reykjavíkurflugvelli í kvöld. Þyrlan er önnur tveggja leiguþyrla sem Landhelgisgæslan tekur í notkun af gerðinni Airbus H225.

Vélarnar færa Landhelgisgæsluna fyrr inn í nútímann en ráðgert var en þær eru nútímalegri, stærri, langdrægari, hraðfleygari og öflugri en þær þyrlur sem Landhelgisgæslan hefur notað undanfarin ár. Hin leiguþyrlan, TF-EIR, kom til landsins í mars og fór í sitt fyrsta útkall fyrir tæpum mánuði. TF-GRO verður formlega tekin í notkun síðar í mánuðinum. TF-EIR og TF-GRO leysa leiguþyrlurnar Gná og Syn af hólmi en þær hafa verið í þjónustu Landhelgisgæslunnar undanfarin ár.

Sigurður Heiðar Wiium, yfirflugstjóri, Andri Jóhannesson, flugmaður, og Jón Erlendsson, yfirflugvirki, skipuðu áhöfn vélarinnar frá Noregi í dag. Að sögn Sigurðar Heiðars gekk flugið yfir hafið vel en vélinni var flogið frá Noregi til Hjaltlandseyja. Þaðan var farið til Færeyja og þvínæst til Reykjavíkur með millilendingu á Höfn í Hornafirði.

Flugfloti Landhelgisgæslunnar samanstendur nú af þyrlunum TF-LIF, TF-EIR og TF-GRO auk flugvélarinnar Sifjar.

TF-GRO kemur til landsins

IMG_1272TF-GRO við komuna til Reykjavíkur í kvöld. 

IMG_1281TF-GRO er önnur tveggja leiguþyrla Landhelgisgæslunnar af gerðinni Airbus H225.

IMG_1278Sigurður Heiðar Wiium, Jón Erlendsson og Andri Jóhannesson. 

IMG_1275Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum í kvöld.

IMG_1280