TF-SIF flaug með öndunarvél á Ísafjörð

TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, flaug með öndunarvél til Ísafjarðar í hádeginu í dag.

  • 20200407_143450846_iOS

7.4.2020 Kl: 14:51

TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, flaug með öndunarvél til Ísafjarðar í hádeginu í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði samband við Landhelgisgæsluna og óskaði eftir því að flogið yrði með öndunarvélina vestur á firði. 

Áhöfnin á TF-SIF var þá stödd á Reykjavíkurflugvelli og hafði samband við áhöfnina á varðskipinu Þór sem gat gefið greinargóðar upplýsingar um veðuraðstæður í Ísafjarðardjúpi fyrir flugið. 

TF-SIF lenti á flugvellinum á Ísafirði um hádegisbil þar sem öndunarvélin var afhent.

20200407_143458832_iOSViggó M. Sigurðsson og Gunnar Örn Arnarson, stýrimenn á TF-SIF um borð í TF-SIF í dag.20200407_143450846_iOSTF-SIF á flugvellinum á Ísafirði.