Þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitir og lögregla leituðu að skemmtibáti á Vestfjörðum

Þegar myrkur var skollið á í kvöld hafði skemmtibáturinn ekki skilað sér til hafnar og var því ákveðið að kalla þyrlu Landhelgisgæslunnar út til leitar.

  • Thyrluaefing-TF-EIR-VS-TYR-14-

26.9.2019 Kl: 23:45

Þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitir og lögregla leituðu fyrr í kvöld að skemmtibáti sem strandaði á óþekktum stað á Vestfjörðum. Einn var um borð en vitað var að hann hafði haldið frá Þingeyri út á Dýrafjörð fyrr í dag. 

Upphaf málsins má rekja til þess að aðstandendur skipverjans höfðu samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óttuðust um afdrif hans en þá voru nokkrar klukkustundir voru liðnar frá því að hann lagði af stað frá Þingeyri. Landhelgisgæslan óskaði eftir því að sjófarendur grenndinni svipuðust um eftir honum. Sú eftirgrennslan bar fljótlega árangur og sagðist skipverji skemmtibátsins vera á leið til hafnar.

Þegar myrkur var skollið á í kvöld hafði skemmtibáturinn ekki skilað sér til hafnar og var því ákveðið að kalla út björgunarsveitir á Vestfjörðum auk þyrlu Landhelgisgæslunnar til leitar.

Um klukkan 23:00 í kvöld náðist loks samband við skipverjann sem sagði að skemmtibáturinn hefði strandað. Engin hætta var þá á ferðum en var þá ekki viss um hvar hann væri staddur. Lögreglunni á Vestfjörðum var gert viðvart sem fann manninn á tólfta tímanum í kvöld. Hann var heill á húfi og í kjölfarið var þyrlunni og björgunarsveitum snúið við.