TF-LÍF kölluð út

Beiðnin var síðar afturkölluð, þá voru björgunarsveitir komnar á staðinn.

  • TF-LIF_8434_1200

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst klukkan 15.56 beiðni frá lögreglu um aðstoð þyrlu vegna konu sem slasaðist á Bergárdalsheiði, skammt norður af Höfn í Hornafirði. Um svipað leyti bárust boð frá neyðarsendi sem virkjaður var á þessum slóðum og sendi stjórnstöðin björgunarsveitinni á staðnum staðsetninguna. TF-LÍF fór í loftið klukkan 16.35. 

Laust fyrir klukkan fimm tilkynnti svæðisstjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Hornafirði að björgunarsveitir væru komnar á staðinn og þyrlunnar væri ekki lengur þörf. Henni var því snúið við. Lenti þyrlan í Reykjavík klukkan 17.19.