Þyrlur Landhelgisgæslunnar gerðar út frá Reykjavík og Akureyri

29. mars, 2023

Áhöfnin á TF-GNA verður til taks fyrir norðan fram á föstudag.

29.3.2023 Kl: 18:19

Áhöfnin á TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar verður til taks á Akureyri fram
á föstudag. Þangað hélt þyrlusveitin síðdegis og mun hafa aðsetur fyrir norðan
ásamt lækni. Viðbragðstími þyrlunnar verður umtalsvert styttri þaðan en frá
Reykjavík ef sinna þarf útkalli á Norður-eða Austurlandi.

Á Akureyrarflugvelli er góð aðstaða fyrir þyrluna. Þar er unnt að geyma
hana inni í flugskýli á milli verkefna.

Áhöfnin á TF-EIR verður á sama tíma til taks í Reykjavík.

Thyrla-i-fugskyli-a-Akureyri

Þyrlan verður geymd inni í flugskýli á Akureyri.